Fyrirmyndarverkefni
205 m² einbýlishús á einni hæð með bílgeymslu og upptekinni lofthæð
Sunnutröð á Akureyri
Rúmgott einbýlishús á einni hæð undir valmaþaki. Bjart, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi undir upptekinni lofthæð, fimm svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innbyggð bílgeymsla.



- Stærð hönnunar
- 205,3 m²
- Svefnherbergi
- 5
- Bílgeymsla
- 31,5 m²
- Hjónaherbergi
- 16,1 m²
Yfirbyggt innskot við inngang er klætt lerki og gefur húsinu hlýlegan svip. Herbergi eru með 2,5 m lofthæð en alrými og bílgeymsla eru með upptekin loft. Húsið er hannað með öllum eiginleikum og kröfum heilsárshúss.
Þetta er klassísk teikning sem hefur verið byggð áður. Húsið á myndinni stendur við Sunnutröð á Akureyri. Engin tvö hús eru nákvæmlega eins: húsið og grunnmyndin bjóða upp á ýmsa möguleika, til dæmis að spegla húsið svo bílgeymslan verði hægra megin, snúa stofu og eldhúsi, stækka útsýnisglugga og þannig mætti lengi telja.
Húsið er afhent á byggingarstigi III og uppsetningarteymi verksmiðjunnar reisir það á byggingarstað. Grunnmynd er byggð á teikningu Stefáns Ingólfssonar arkitekts.
- Verksmiðjuframleiddar timbureiningar, framleiddar innandyra óháð veðri
- Valmaþak klætt svörtu bárujárni
- Grá Swisspearl trefjasementsklæðning, lerki í innskoti við inngang
- Ál-tré gluggar án krossrimla
- Thermolift bílskúrshurð, rafdrifin
- Upptekin loft í alrými og bílgeymslu, 2,5 m lofthæð í herbergjum
- Brunaveggur EI60 milli bílgeymslu og íbúðar, upp í þak






